
Ashley R. Keaton fær nýdoktorsstyrk
11. febrúar 2026
Ashley R. Keaton, einn af samstarfsaðilum Íslenska málsýnabankans, fékk þriggja ára nýdoktorsstyrk úr Rannsóknasjóði. Með styrknum ætlar hún að vinna verkefnið Málfræðimiðuð tækni í greiningu tal- og máltruflana þvert á tungumál í samstarfi við Irisi Eddu Nowenstein.